Þá er þessi vika á enda komin. Ég var nú ekkert svo rosalega dugleg að fara í ræktina en ég fór 2 sinnum þessa vikuna

Fór svo út í 1oghálfs til 2tíma kraftgöngu með Púka (hundinn okkar) 2 sinnum í vikunni líka áður en að ég mætti í vinnuna, en ég er á kvöldvakt þessa vikuna í vinnunni

En næsta vika mun vera miklu fjölbreyttari og mikið um að vera því að við vinkonurnar ætlum að fara á hverjum degi í ræktina í tíma! Bara alveg ótrúlega gaman

Vorum akkurat að velja okkur tímana sem að við ætlum í bara núna rétt áðan og mér datt í hug að birta þá hérna líka

Ræktin vikuna 18-22janúar
Mánudag : RPM-tími kl.17:30
Þriðjudag : Ég mun ekki fara í ræktina þann daginn er plönuð á annan stað

Miðvikudag : Boxbrennsla kl.18:40
Fimmtudag : Body Pump kl.17:30
Föstudag : Body Attack kl.17:30
Og svona til þess að sýna ykkur hvaða tímar þetta eru þá tek ég lýsingarnar af
www.hress.is og bæti þeim líka hérna inn

RPM
Velkomin í kaloríubrennslu
RPM, skemmtilegur og sportlegur þolþjálfunartími sem eyðir kaloríum á met hraða - upp í 900 í einum tíma! Þú upplifir hópefli og hjólar eftir bestu hjólakerfum sem búið er að setja saman í takt við skemmtilega og uppörvandi tónlist. RPM eykur fljótt úthald þátttakenda og styrkir sérstaklega vöðva í neðri hluta líkamans. " Afstressun " er þó einn af stóru kostum RPM tímanna. Boxbrennsla
Ég hugsa að lýsingin á tímanum segi sig bara alveg sjálft

BodyPump
Bodypump, fljótasta leið í heimi til að komast í form.
BODYPUMP er vinsælasti hóptími í heimi þar sem lóð og stangir eru notaðar
til þess að styrkja og tóna vöðvana. Tímar fullir af orku og hvatningu. BODYPUMP er fyrir bæði konur og karla, byrjendur sem lengra komna. Engin hopp eða högg á líkamann, aðeins hörku átök þar sem léttar stangir með lóðum eru notaðar. Þú stjórnar sjálfur þyngdinni á lóðunum. Unnið er með alla stóru vöðvahópana. "Þú myndir aldrei taka svona vel á því í tækjasalnum"
BodyAttack
BodyAttack- 55 minútna þolfimi með lotuæfingum, þar sem settar eru saman þol- og styrktaræfingar. Tími fyrir þá sem vilja virkilega komast í gott form. Mikil brennsla. Þetta er tími sem við mælum með fyrir þá sem eru í þokkalegu og eða, góðu formi.
Hvernig líst ykkur á þessa dagskrá?

Er hún ekki bara fín ásamt góðu og hollu matarræði!
Hlakka til þess að heyra hvað ykkur fynnst!
Knús&kram
Og góða helgi